12.5.2006 | 15:34
Drykkja
Það lítur allt út fyrir að eitt helsta drykkjugengi norðan suðurpólsins fái ekki leigðan bústað. En við deyjum ekki ráðalausir og því hefur verið ákveðið að halda dulítinn gleðskap í Hrísalundi. Þar mun eiga sér stað kraftdrykkja og annað sem því fylgir. Stefnan er að vera meira ölvaðir en þegar við fórum síðast í bjórkynningu. Persónulega er ég að hugsa um að bæta metið og drepast fyrr en síðast sem sagt um sjö leitið. Ég vona að menn sjái sér fært að mæta og drekka sig út úr korti. Miðgarður,fór á frænku þína fyrir fermingu
Villi Zlatan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.5.2006 | 21:32
Þéttur á kantinum
Sælar. Ég og Sævar kraftriðill erum að hugsa um leigja bústað 15.júní fyrir miðgarðsmenn og fleira fólk. Það var þá hugmyndin að fara í bjórkynningum og líta í kjarnaskóg og fara svo í þennan tiltekna bústað. Það er reyndar ekki komið hreint hvar hann verður. Þannig að núna er bara spurning hvort menn eru tilbúnir að hólkast upp og drekka alla rænu frá sér? Það verður þá ekki fleira í bili. Nætursaltaður blöðruselur í raspi.
Villi Zlatan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2006 | 17:21
Fyrsta bloggfærsla
Sælar, datt bara í hug að búa til svona bloggsíðu þar sem ég sé fram á það að við miðgarðsmenn verðum nú eitthvað fleiri hérna í borginni næsta vetur. Hér verður því hægt að koma til skila mikilvægum upplýsingum s.s. ef fyllerí, party, grillveislur, matarboð, rauðvín og ostar eða teboð
er í vændum.
Vonandi koma svo líka myndir og góðar sögur í framhaldi.
Miðgarðsfélagar endilega hafið samband til að fá aðgang
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

